UM FYRIRTÆKIÐ
Formverk ehf. var stofnað árið 1997 og sérhæfir sig í framleiðslu á trefjaplastvörum. Megináhersla hefur verið lögð á framleiðslu á brettaköntum fyrir breytta jeppa af ýmsum stærðum og gerðum. Formverk framleiðir einnig heita potta, kanóa, ásamt aukahlutum fyrir bíla og fellihýsi. Einnig tekur fyrirtækið að sér sérsmíði og frumsmíði af ýmsu tagi.
Formverk leggur ríka áherslu á nákvæm vinnubrögð og gæði í framleiðslu. Starfsmenn fyrirtækisins hafa góða reynslu í hönnun og frumsmíði til mótagerðar fyrir trefjaplastframleiðslu.
Formverk
- Trefjaplastvörur
